| Verið hjartanlega velkomin á síðuna mína.
Ég heiti Karen Björg og er 8 ára gömul |
|
|
Um mig:
Ég er Karen Björg og er 8 ára hnáta úr Hafnarfirðinum. Ég fæddist þann 7. maí árið 2000 á Landsspítalanum í Reykjavík. Ég bý í Gaflarabænum ásamt mömmu minni sem heitir Sigrún María (79) Ég á lítinn bróður sem heitir Ríkharður Axel og er 18 mánaða. Pabbi minn heitir Helgi (73) og býr hann í Kópavogi og fer ég oft til hans því það er eiginlega mitt annað heimili.
Mér finnst voðalega gaman að vera stóra systir og er ég voða montinn með bróðir minn.
Skólinn minn heitir Lækjarskóli og er ég í 2. HK. Bestu vinkonur mínar eru Tinna Lind, Rósa Marí, Thelma og Bryndís. Svo á ég líka góðan vin sem heitir Úlfur. Ég er að æfa fótbolta hjá FH og finnst mér það gaman. Mér finnst rosalega gaman að fara á handboltaleiki. Ég held með Haukum í handbolta og uppáhaldsleikmaðurinn minn er Andri Stefan. Uppáhaldsmaturinn minn eru mexíkanskar pönnukökur með hakki, káli, agúrku, osti og mjög mikið af sýrðum rjóma ;) Ég elska að fara á Taco Bell.
Verið svo óhrædd að fá lykilorðið á heimasíðuna mína. Vinsamlegast skrifið svo í gestabókin mína því okkur mömmu finnst alltaf svo gaman þegar við sjáum hverjir eru að skoða síðuna mína.
|
|
Ég og Emil Eiríkur frændi minn
|
| You are guest nr. 8107 |